top of page
Djarfi logo

HEILDSALA MEÐ VÍN OG HUNANG

FRÁ SARDINÍU

B29C4536-D70D-4CF1-8441-C2EDB397794B_1_102_o.jpeg
ROSATO (1).png
NURACADA.png

Nýtt í Vínbúðinni

Rosato rósavínið og Nuracada rauðvínið kemur í sölu 1. júní

Rosato og Nuracada vínin eru nú að koma í sölu hjá eftirfarandi útsölustöðum Vínbúðanna.

  • Kringlan

  • Heiðrún

  • Álfrún Hafnarfirði

  • Skútuvogur - Nuracada

  • Mosfellsbær - Rosato

Rósavínið er ferskt og svalandi í íslenska sumrinu og rauðvínið er fullkomið með grillinu. Njótið!

Cantina Santadi rauðvín.png

Nýtt í Vínbúðinni

Þrjár gerðir carignano þrúgunnar komnar í sölu

Grotta Rossa, Rocca Rubia og Terre Brune eru nú komin í sölu hjá eftirfarandi útsölustöðum Vínbúðanna.

  • Kringlan

  • Heiðrún

  • Skútuvogur

  • Álfrún Hafnarfirði

Um er að ræða gæðavín sem unnin eru úr Carignano þrúgunni. Núna er ástæða til þess að prófa og upplifa þessi vín sem eru öll mismunandi þó að uppruninn sé sá sami. Njótið!

Terre Brune_edited.png

Skotvís - Tímarit skotveiðimanna

Umfjöllun um Audarya og Cantina Santadi

Í nýjasta tölublaði Skotvís, tímarits skotveiðimanna, má finna umfjöllun um vín frá Audarya og Cantina Santadi sem væru tilvalin með jólasteikinni.

Audarya-Viticoltori-in-Sardegna-Nuracada
Skotvis2024_forsida_edited.jpg

Nýtt í Vínbúðinni

Audarya Vermentino í fyrsta skipti á Íslandi

Vermentino hvítvínið frá Audarya er komið í sölu hjá eftirfarandi útsölustöðum Vínbúðanna.

  • Kringlan

  • Heiðrún

  • Skútuvogur

  • Mosfellsbær

GG Logo 2024_edited.png
cannonau-audarya-pagina-vino_edited.png

Nýtt í Vínbúðinni

Audarya Cannonau í fyrsta skipti á Íslandi

Cannonau rauðvínið frá Audarya kom í sölu 1. október hjá eftirfarandi útsölustöðum Vínbúðanna.

  • Kringlan

  • Heiðrún

  • Skútuvogur

  • Hafnarfjörður

Framleiðendur

Þegar kemur að vali á framleiðendum og vínum þeirra þá teljum við hjá Djarfa mikilvægt að heimsækja allar vínekrurnar og kynnast þeirra áherslum og vinnubrögðum í eigin persónu. Smökkun fer fram á staðnum og að uppfylltum ákveðnum skilyrðum þá er prufusending tekin til Íslands í kjölfarið.

Þegar heim er komið þá hefur Djarfi á að skipa góðum hópi vínsérfræðinga og annarra vínáhugamanna sem taka hvert vín til skoðunar og smakka og meta gæði þess.

Þegar niðurstaðan liggur fyrir eru pantaðar minni sendingar til að kanna viðbrögð markaðarins áður en farið er af stað í magninnkaup.

Viðskiptavinir Djarfa geta því treyst því að í vöruvali okkar séu vín sem hafa gengið í gegnum strangt ferli og gæði séu trygg.

ASSAJE_edited.png
CAPICHERA_TAMBE_2024_edited.png

​Vín frá Sardiníu

"Ef þig langar að prófa eitthvað einstakt"

Djarfi sérhæfir sig í vínum frá Sardiníu.

Sardínsk vín eru þekkt á Ítalíu fyrir einstakar bragðtegundir sem eru unnar úr innfæddum þrúgum eins og Cannonau og Vermentino, sem þrífast í fjölbreyttu landslagi eyjunnar. Hin einstaka rauða þrúga Cannonau di Sardegna og ferska hvíta þrúgan Vermentino di Sardegna, ásamt einstöku landslagi, jarðvegi og loftslagi og hefðbundinni víngerðartækni, stuðla að áberandi og frægum karakter sardínskra vína. Þetta, ásamt ástríðufullri skuldbindingu vínframleiðenda á eyjunni við menningararfleifð sína, gerir það að verkum að sardínísk vín skera sig úr í ítölsku vín senunni.

Vínber þrúgur frá Audarya
IMG_8455.jpg
Eigandinn Óskar Tryggvi Svavarsson Djarfi

Um Djarfa

Óskar Tryggvi Svavarsson

  • Áhugi minn á vínum frá Sardiníu kviknaði fyrir tilviljun þegar okkur hjónunum var boðið í afmæli til Sardiníu haustið 2023. 

  • Þar tókum við m.a. þátt í vínsmökkun á vínekru Audarya sem hafði slík áhrif á mig að ég féll fyrir vínunum þeirra og sá fyrir mér að þessi vín ættu fullt erindi til Íslands. 

  • Þá fór boltinn að rúlla og Djarfi ehf. varð til.

  • Ég er nýr í vínbransanum en síðustu tæp 30 árin hef ég starfað við flugið og er í dag flugstjóri hjá Icelandair. Ég ferðast því mikið um heiminn og hef kynnst vínum úr ýmsum heimshornum. 

  • Ég hef gaman af nýjum áskorunum í lífinu og hlakka til að takast á við þessa. 

  • Í vor lauk ég svo námskeiðinu Level 2 in wines frá WSET í London.

Contact

Viltu Læra Meira?
Hafðu Samband

  • Facebook

Takk fyrir !

©2024 - Djarfi ehf.

bottom of page