top of page
Bæði vínframleiðendur og framleiðendur á öðrum sardinískum vörum sem við flytjum inn eiga það sameiginlegt að við hjá Djarfa höfum farið á staðinn og séð með eigin augum hvernig framleiðslan fer fram. 

Við vöndum valið og auk þess að smakka vörurnar á staðnum þá leitum við til bæði vínsérfræðinga og vínáhugamanna á Íslandi áður en tekin er ákvörðun um að flytja inn vín eða vörur frá tilteknum framleiðanda.

Í dag eru fjórir framleiðendur sem selja okkur sínar vörur en við erum stöðugt að vinna að því að fjölga þeim en við vöndum okkur og því tekur tíma að taka inn nýja framleiðendur. 

​Hér fyrir neðan má finna lista yfir alla okkar framleiðendur og þær vörur sem eru í boði hjá Djarfa.
logo-audarya-cantina-vino-sardegna.jpg

Audarya vínekran er staðsett í suður hluta Sardiníu.

Hún nær yfir um 50 hektara lands.

Framleiðslan er um 420.000 flöskur á ári sem eru um 70.000 kassar.

Fyrirtækið er frekar ungt en rætur þess spanna 70 ára sögu fjölskyldunnar við vínrækt.

Í dag er þriðja kynslóðin tekin við, systkynin Nicoletta og Salvatore Pala.

Audarya þýðir “Nobility of the soul” sem á vel við enda finnur maður andann lyftast þegar bragðað er á þessum einstöku vínum.

image_2024-02-11_124948533.png
Cantina Santadi Logo.png

Cantina Santadi er vínframleiðandi með yfir 60 ára sögu í suð-vestur hluta Sardiníu í Sulcis. Fjöldi vínræktenda í nágreninu leggur til afurðir sínar sem nýttar eru til framleiðslunnar.


Mikil áhersla er lögð á gæði en á meðal helstu þrúga sem nýttar eru má nefna Carignano, Monica, Sangiovese, Syrah, Merlot og Bovaleddu fyrir rauðvínin og Vermentino, Nuragus, Chardonnay og Nasco fyrir hvítvínin.

Cantina Santadi Grotta Rossa flaska.png
Cantina Santadi Terre Brune flaska_edited.png
Cantina Santadi Villa Solais flaska_edited.png

Capichera vínekran er staðsett í norð-austur hluta Sardiníu innan um granít kletta í Gallura héraðinu.
 

Þessi vínekra á sér yfir 50 ára sögu og mikilvægasta þrúgan þeirra hefur verið Vermentino DOCG. En fleiri afbrigði koma þar við sögu, eins og Carignano, Syrah og fleiri þrúgur.

ASSAJE_edited.png
Vignangena_edited.png
CAPICHERA_TAMBE_2024_edited.png
bresca dorada logo í lit.gif

Bresca Dorada býr yfir 40 ára sögu á suð-austur hluta Sardiníu. Orðin Bresca Dorada á sardinísku þýða vaxkaka hunangsflugna (e. honeycomb) og gylltur (e. golden) sem er litur hunangsins.


Í allri vinnslu á hráefnum leggur Bresca Dorada áherslu á að vernda landið og nýta allt það sem tilfellur í framleiðslunni. Það sem ekki nýtist eins og hrat frá ávöxtum er nýtt sem áburður. Orkan sem þarf til framleiðslunnar kemur að stórum hluta frá sólarsellum.

copertina prodotti sito agrumi ph schirru (7).jpg
copertina prodotti sito marmellate ph schirru (9).jpg

Viltu Læra Meira?
Hafðu Samband

  • Facebook

Takk fyrir !

©2024 - Djarfi ehf.

bottom of page